Fotbolti.net
28.01.25 - 10:24
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Hákoni líkt við mikla goðsögn

Hákon Arnar Haraldsson.

Hákon Arnar Haraldsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Áhuginn á Hákoni Arnari Haraldssyni er mikill þessa stundina. Hann hefur verið að spila gríðarlega vel með franska félaginu Lille eftir að hann kom úr meiðslum.

Fram kom á Daily Mail fyrir stuttu að Newcastle og Manchester United hefðu sent njósnara á leik hjá Lille til að fylgjast með framherjanum Jonathan David en báðir njósnararnir skiluðu af sér skýrslu um Hákon eftir að hafa séð hann spila.
Njósnarar Man Utd og Newcastle fylgdust með Hákoni
TENGT EFNI

Njósnarar Man Utd og Newcastle fylgdust með Hákoni

Fram kemur í fréttinni að Hákon sé leikmaður sem hægt sé að líkja við Luka Modric, miðjumann Real Madrid. Modric er einn besti miðjumaður sem uppi hefur verið en hann hefur átt ótrúlegan feril. Meðal annars var hann einu sinni valinn besti fótboltamaður í heimi.

Hákon er aðeins 21 árs gamall og er gríðarlega spennandi leikmaður. Hann hefur einnig verið orðaður við Crystal Palace og Tottenham á Englandi.
Luka Modric.

Luka Modric.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.