Fotbolti.net
28.01.25 - 14:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Scholes segir að það eigi að banna Rashford í búningsklefanum

Marcus Rashford.

Marcus Rashford.

Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Áfram halda goðsagnir Manchester United um stöðu mála hjá Marcus Rashford, leikmanni liðsins. Paul Scholes telur að það eigi að banna hann innan búningsklefans.

Rashford hefur verið utan hóps í flestum leikjum eftir að Rúben Amorim tók við stjórnartaumunum en eftir sigur gegn Fulham á dögunum sagði Amorim að Rashford væri ekki að leggja sig nægilega mikið fram.
Rio Ferdinand: Engin leið til baka fyrir Rashford eftir þetta
TENGT EFNI

Rio Ferdinand: Engin leið til baka fyrir Rashford eftir þetta

Scholes vill sjá Amorim fara enn lengra en að hafa Rashford bara ekki í hópnum.

„Mér finnst Rashford hafa brugðist mörgum með viðhorfi sínu," sagði Scholes.

„Þú hugsar um ungu leikmennina, eins og Alejandro Garnacho, sem eiga að líta upp til Marcus núna. Hann er 27 ára gamall og hann er ekki að æfa almennilega."

„Þú ert að bregðast liðsfélögum þínum sem eru í búningsklefanum og að mínu mati á að banna hann þar inni. Ef hann er þar og ungu leikmennirnir líta upp til hans, þá er betra að hann fari sem fyrst."

Rashford fór vel af stað hjá Amorim en svo missti hann sæti sitt í liðinu og fór í viðtal um að hann þyrfti nýja áskorun. Enn sem komið er hefur engu félagi tekist að krækja í hann.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.