Fotbolti.net
28.02.26 - 13:41
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Eigi ekki lengur möguleika á Íslandsvininum

Kasper Högh.

Kasper Högh.

Canon

Mynd: EPA

Skoska félagið Celtic reyndi að kaupa sóknarmanninn Kasper Högh frá Bodö/Glimt í janúar en það gekk ekki eftir.

Fjölmiðlamaðurinn Pete O'Rourke telur að Celtic eigi ekki lengur möguleika á Högh eftir frammistöðu hans í Meistaradeildinni þar sem hann hefur slegið í gegn með Bodö/Glimt.
Gamli Valsarinn kostar nú meira en milljarð - „Okkur fannst hann mjög góður"
TENGT EFNI

Gamli Valsarinn kostar nú meira en milljarð - „Okkur fannst hann mjög góður"

„Ég tel að frammistaða hans muni draga að stærri félög með meira fjármagn," sagði O'Rourke við Football Insider.

„Verðmiðinn á honum mun hafa hækkað mikið á síðustu vikum og mánuðum út af frammistöðu hans í Meistaradeildinni."

Það er ekki skrítið að það skuli gleymast að þessi 25 ára gamli sóknarmaður spilaði með Val sumarið 2020. Hann kom hingað á lánssamningi frá danska félaginu Randers. Hann ætlaði að skora mörk hér á landi en tókst það ekki þar sem hann var að koma til baka eftir meiðsli.

Högh gekk í raðir Bodö/Glimt árið 2024 og þar hefur hann gjörsamlega sprungið út.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.