Ísak Bergmann Jóhannesson er undir smásjá hjá mörgum stórum félögum í Evrópu.
Ísak Bergmann er aðeins 17 ára gamall og kominn með fast byrjunarliðssæti í toppbaráttuliði í Svíþjóð. Skagamaðurinn hefur verið orðaður við Manchester United, Liverpool og Juventus.
Þegar leikmenn fá svona athygli þá birtast oft myndbönd fyrir stuðningsmenn þessara félaga á Youtube með helstu tilþrifum leikmannsins.
Nokkur þannig eru komin af Ísaki og þar á meðal frá WorldOfFootball sem er með rúmlega 200 þúsund áskrifendur af efninu sínu.
Myndbandið ber heitið: Hérna er ástæðan fyrir því að Manchester United vill kaupa Isak Bergmann Johannesson.
Hér að neðan má sjá myndbandið.
Sjá einnig:
Þjálfari Norrköping: Ísak er besti leikmaður deildarinnar
Athugasemdir