Búist við öðru tilboði frá Arsenal - Býr Fati til pláss fyrir Rashford? - Hvað verður um Tel?
   mið 29. janúar 2025 11:47
Elvar Geir Magnússon
Heimild: Bergensavisen | Bergens Tidende 
Freyr vill Sævar Atla og síleskan bakvörð
Sævar Atli Magnússon er 24 ára og á fimm landsleiki fyrir Ísland.
Sævar Atli Magnússon er 24 ára og á fimm landsleiki fyrir Ísland.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Nayel Mehssatou.
Nayel Mehssatou.
Mynd: Getty Images
Bergens Tidende segir að Freyr Alexandersson vilji fá Sævar Atla Magnússon til sín í norska félagið Brann. Sævar hefur verið orðaður við Brann síðan Freyr tók við liðinu.

Sævar lék undir stjórn Freys hjá Lyngby en samningur hans í Danmörku er að renna út og hann líklega á förum. Sævar Atli er með fjölhæfni og getur leyst margar stöður fram á við sem gæti hjálpað.

Fleiri félög horfa til Sævars, hann hefur verið orðaður við þýsku B-deildina og þá segir Orri Rafn Sigurðarson, fyrrum fréttamaður Fótbolta.net, að danska félagið Viborg hafi áhuga á honum.

Bakvarðakrísa hjá Brannverjum
Bergensavisen segir þá að Freyr vilji fá hægri bakvörðinn Nayel Mehssatou, sem lék undir hans stjórn hjá belgíska félaginu Kortrijk.

Mehssatou er 22 ára og á sex landsleiki fyrir Síle. Hann er fæddur og uppalinn í Belgíu en faðir hans er marokkóskur og móðir hans frá Síle.

Samningur hans við Kortrijk rennur út í sumar og hann er sagður hafa áhuga á því að fara til Brann. Norska liðið er í bakvarðavandamálum.

„Eins og staðan er núna erum við ekki með neinn vinstri bakvörð og engan náttúrulegan hægri bakvörð til staðar," sagði Freyr við fjölmiðla í síðustu viku.

Freyr hefur sýnt vinstri bakvörðum úr íslenska landsliðinu áhuga, Loga Tómassyni og Kolbeini Finnssyni. Freyr tók við þjálfun Brann fyrr í þessum mánuði en norska úrvalsdeildin hefst þann 29. mars, þá leikur Brann gegn Fredrikstad.


Athugasemdir
banner
banner