Hákon Arnar Haraldsson er undir smásjám félaga í ensku úrvalsdeildinni og fjallað var um það í vikunni að njósnarar Manchester United og Newcastle hefðu heillast af honum.
Hákon hefur verið að leika afskaplega vel með Lille í Frakklandi og fékk til dæmis góða dóma fyrir frammistöðu sína gegn Liverpool á Anfield í Meistaradeildinni.
Í viðtali við Morgunblaðið er Hákon spurður út í þann orðróm sem er í gangi.
Hákon hefur verið að leika afskaplega vel með Lille í Frakklandi og fékk til dæmis góða dóma fyrir frammistöðu sína gegn Liverpool á Anfield í Meistaradeildinni.
Í viðtali við Morgunblaðið er Hákon spurður út í þann orðróm sem er í gangi.
„Það þýðir ekkert að velta sér upp úr því sem er skrifað um mann í fjölmiðlum. Vinir mínir eru mjög duglegir að senda mér skjáskot af því þegar það er verið að orða mig við hin og þessi félög. Ég hef ekki heyrt neitt og ég held satt best að segja að það séu njósnarar frá einhverjum liðum á öllum leikjum í Meistaradeildinni," segir Hákon við Morgunblaðið.
„Maður lærði það ungur að umræðan má ekki hafa nein áhrif á mann. Maður verður var við eitthvað en ég hef reynt eftir bestu getu að blokka allt sem ég sé. Stundum kemst maður ekki hjá því að sjá eitthvað enda er ég ágætlega duglegur að skoða fótboltafréttir en ég reyni að láta þetta hafa sem minnst áhrif á mig. Mér finnst mér hafa tekist vel til með það."
„Hausinn er mjög fljótur að fara ef þú ætlar að láta þetta stíga þér til höfuðs. Mamma og pabbi hafa líka verið mjög dugleg að halda mér á jörðinni, sérstaklega þegar ég var í Danmörku. Þau voru alltaf fyrst til þess að koma mér niður á jörðina."
Athugasemdir