Fotbolti.net
29.05.20 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Félög í 1. deild fá aðgang að Wyscout

Félög í 1. deild fá aðgang að Wyscout
Canon

Mynd: Raggi Óla

<a href="https://fotbolti.net/news/04-05-2020/landslidin-og-lid-a-islandi-fa-adgang-ad-wyscout" target="_blank">Greint var frá því í byrjun maí að íslensku landsliðin og félög í Pepsi Max deildunum fái aðgang að Wyscout kerfinu</a> næstu árin. Nú hefur KSÍ staðfest að félög í 1. deild karla fá einnig aðgang næstu þrjú árin.
Í Wyscout kerfinu eru leikmenn leikgreindir og geta þjálfarar nýtt upplýsingar þaðan til að bæta ýmsa þætti í leik sinna liða og til að undirbúa sig betur fyrir næstu andstæðinga.

Af vefsíðu KSÍ:
Samningur þessi mun gera félögum/þjálfurum kleift að skima (scouting), leikgreina og skoða alla leiki á Íslandi. Einnig eru möguleiki að skoða skýrslur af eigin leikjum, leikmönnum og andstæðingum.

Þessi samningur mun bæta vinnuumhverfi félaganna mikið og hjálpa þjálfurum að vinna hraðar í deild þar sem mikið er um ferðalög og stutt er á milli leikja.

Í ljósi þess að enginn sjónvarpssamningur er í gildi við 1. deild karla þá er það er á ábyrgð hvers liðs fyrir sig að taka upp leikina og koma þeim á Wyscout platformið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.