Bruno Lage er búinn að segja starfi sínu upp hjá Benfica eftir að liðið tapaði öðrum deildarleiknum í röð fyrr í kvöld.
Lage hefur ekki tekist að vinna stuðningsmenn Benfica á sitt band en liðið var þó í harðri toppbaráttu við Porto allt tímabilið.
Nú er Porto að stinga af eftir síðustu úrslit og trónir liðið á toppi deildarinnar með sex stiga forystu.
Benfica tapaði fyrir Santa Clara á heimavelli í síðustu viku og fyrr í kvöld tapaði liðið svo 2-0 á útivelli gegn Maritimo.
Stuðningsmenn félagsins, sem eru þekktir fyrir að vera ofbeldisfullir og ganga alltof langt í mótmælum sínum, eru brjálaðir.
Marco Silva, fyrrum stjóri Hull City, Everton og Watford, er talinn líklegasti arftakinn.
Það eru fimm umferðir eftir af portúgalska deildartímabilinu og á Porto eftir að spila tvo erfiða leiki. Einn er á heimavelli gegn Sporting og hinn á útivelli gegn Braga.
Benfica vann portúgölsku deildina í fyrra undir stjórn Lage. Félagið endaði með 87 stig úr 34 umferðum, tveimur stigum meira en Porto.
Athugasemdir