Fotbolti.net
29.09.18 - 21:53
Magnús Þór Jónsson

Rúnar Kristins: Ætlum að berjast um titla að ári

Auglýsing
Rúnar Kristinsson.

Rúnar Kristinsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það var glaður KR þjálfari sem mætti í viðtal eftir 2-3 sigur á Víkingi í kaflaskiptum leik í lokaumferð Pepsi-deildarinnar á Víkingsvelli í dag.



"Hárrétt að leikurinn var kaflaskiptur.  Víkingar voru sterkari í fyrri hálfleik og spiluðu betri fótbolta en við.  Það var smá stress í okkar mönnum, við þorðum ekki að taka boltann niður og spila honum. Við ætluðum reyndar ekkert að spila of mikið, völlurinn bauð ekki upp á það."



„Víkingarnir voru bara betri en sem betur fer jöfnuðum við bara strax þegar Óskar skoraði gott mark og svo í síðari hálfleik var engin spurning hvort var betra liðið.  Við urðum að laga okkur að vellinum, eins og Logi Ólafsson segir þá buðu aðstæður ekki upp á brasilískan bílastæðabolta."

Víkingar skoruðu en náðu ekki að setja mikla pressu eftir það til að jafna, það var ekkert stress á Rúnari í leikslok?



"Jú, ég var bara töluvert stressaður eins og alltaf þegar er bara eitt mark í þessu þá getur allt gerst.  Sem betur fer þá leið tíminn ágætlega hratt og við náðum að bægja öllum hættum frá."



Árangurinn í sumar skiptir ekki Evrópusætið heilmiklu máli?



"Við eigum náttúrulega alltaf að vera í Evrópukeppni. Það var ekki spurning þegar ég tók við KR liðinu að við næðum að fara í Evrópukeppni, það var bara eitt ár sem við misstum núna.  Nú ætlum við að fikra okkur upp töfluna og berjast um titla ári, ekki nokkur spurning."



Alex Freyr lék ekki með Víkingum í dag, er það út af því að hann verður með KR á næsta ári?



"Ég bara get ekki tjáð mig um það.  Hann er leikmaður Víkings og sem betur fer spilaði hann ekki á móti okkur í dag."



Eru menn lagðir af stað að plana næsta ár í Vesturbænum?



"Við þurfum að stækka leikmannahópinn, á dag vorum við með unga stráka úr 2.flokki á bekknum sem hefði verið gaman að geta spilað en í svona hefði verið of mikið að kasta þeim út í þá djúpu laug. 



Við ætlum að gera allt sem við getum til að koma KR í toppbaráttuna á næsta ári."




Nánar er rætt við Rúnar í viðtalinu sem fylgir.
KR náði Evrópusæti.

KR náði Evrópusæti.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.