Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 29. október 2022 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Símon Logi framlengir við Grindavík
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Símon Logi Thasaphong er búinn að gera nýjan tveggja ára samning við Grindavík sem gildir út keppnistímabilið 2024.


Símon Logi er 21 árs framherji sem á 54 leiki að baki með Grindavík í deild og bikar. Hann er uppalinn hjá félaginu og skoraði 4 mörk í 21 leik er Grindavík endaði um miðja Lengjudeild í sumar.

„Það eru frábærar fréttir fyrir félagið að Símon Logi verði áfram í Gindavík. Hér er hans framtíð og hjarta hans slær fyrir Grindavík,“ segir Haukur Guðberg Einarsson, formaður Knattspyrnudeildar Grindavíkur.

„Það býr mikið í Símoni Loga og ég er þess fullviss að hann muni halda áfram að bæta sig sem knattspyrnumaður hjá okkur í Grindavík á næstu árum.“


Athugasemdir
banner
banner
banner