Tomasz Luba og Ingimar Helgi Finnsson hafa framlengt samninga sína við Árborg.
Luba tók við liðinu árið 2021 en liðið hefur verið hársbreidd frá því að tryggja sér sæti í 3. deild undanfarin ár. Liðið var í 3. sæti í 4. deild í sumar tveimur stigum á eftir Ými sem fór upp.
Ingimar Helgi var ráðinn spilandi aðstoðarþjálfari liðsins árið 2022.
Hann lék hins vegar aðeins einn leik það ár og var á hliðarlínunni á nýliðinu tímabili.
Líka (Staðfest) ?? pic.twitter.com/pf62T8FmAZ
— Árborg FC (@arborgfc) October 28, 2024
(Staðfest) ???? pic.twitter.com/bZma6AkGbB
— Árborg FC (@arborgfc) October 28, 2024
Athugasemdir