Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 30. júní 2020 23:33
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Evra: Ég elska Fernandes - Allt sem hann gerir er jákvætt
Mynd: Getty Images
„Ég elska þennan leikmann [Bruno Fernandes]! Ég er í yfir mig hrifinn. Að koma inn í janúar er ekki auðvelt og jafnvel það sem hann segir er líka jákvætt," sagði Patrice Evra, sérfræðingur á Sky Sports, um Bruno Fernandes, miðjumann Manchester United í kvöld.

Fernandes skoraði 2. og 3. mark United í 0-3 útisigri á Brighton í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

„Hann vill fá boltann, vill búa til og er ekki hræddur. Hann er svo jákvæður. Að mínu mati hefur hann breytt hlutunum. Hann er lykillinn að breytingunum hjá United. Ég ber hann saman við Paul Scholes þó það sé í raun bannað. Allt við leik United í dag leit vel út."

„Ég veit að þetta var gegn Brighton en hann vill spila fótbolta og lætur United líta út sem lið með gott jafnvægi. Þetta leit út fyrir að vera auðvelt,"
sagði Evra.
Athugasemdir
banner
banner
banner