Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   þri 31. janúar 2023 22:02
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Enski deildabikarinn: Longstaff sparkaði Newcastle í úrslit
Mynd: Getty Images

Newcastle 2 - 1 Southampton
1-0 Sean Longstaff ('5 )
2-0 Sean Longstaff ('21 )
2-1 Che Adams ('29 )
Rautt spjald: Bruno Guimaraes, Newcastle ('82)


Newcastle er komið í úrslit enska deildabikarsins eftir sigur á Southampton.

Eftir 1-0 sigur í fyrri leik liðanna gerði Sean Longstaff svo gott sem út um leikinn þegar hann skoraði tvö fyrstu mörkin í kvöld.

Fyrra markið kom eftir aðeins fimm mínútna leik og hann bætti öðru markinu við aðeins korteri síðar.

Che Adams minnkaði muninn fyrir lok fyrri hálfleiks með stórkostlegu marki eftir skelfileg mistök í vörn Newcastle.

Newcastle hélt út manni færri síðustu 10 mínúturnar eftir að Bruno Guimaraes lét reka sig af velli fyrir ansi slæma tæklingu.

Newcastle mætir annað hvort Manchester United eða Nottingham Forest í úrslitum en United er þremur mörkum yfir eftir fyrri viðureignina. Síðari viðureignin fer fram annað kvöld.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner