Jannik Vestergaard hefur ekki átt sjö dagana sæla frá því hann gekk í raðir Leicester frá Southampton fyrir nokkrum árum síðan.
Vestergaard var í stóru hlutverki hjá Southampton en hann hefur verið í mun minna hlutverki hjá Leicester.
Vestergaard var í stóru hlutverki hjá Southampton en hann hefur verið í mun minna hlutverki hjá Leicester.
Hann vildi fara frá Leicester í þessum glugga en það kom ekkert spennandi upp snemma í glugganum. Hann útskýrði það í danska sjónvarpinu af hverju það kemur ekki til greina að fara í dag, á gluggadeginum.
„Við eigum von á okkar öðru barni fljótlega. Ef við hefðum náð samkomulagi við félag fyrr í glugganum þá hefði konan mín getað komið með mér. Hún má ekki ferðast í dag," sagði Vestergaard.
„Ég get ekki skilið ólétta eiginkonu mína aleina eftir á Englandi. Hvaða maður myndi gera það?"
Athugasemdir