Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
   sun 31. maí 2026 21:25
Brynjar Ingi Erluson
Besta deildin: Óskar Borgþórs fór á kostum á Hlíðarenda
Óskar Borgþórs fagnar þrennunni
Óskar Borgþórs fagnar þrennunni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valur 1 - 5 Víkingur R.
0-1 Helgi Guðjónsson ('5 )
0-2 Óskar Borgþórsson ('34 )
0-3 Óskar Borgþórsson ('36 )
0-4 Óskar Borgþórsson ('52 )
1-4 Tryggvi Hrafn Haraldsson ('60 )
1-5 Karl Friðleifur Gunnarsson ('84 )
Lestu um leikinn

Íslandsmeistararnir í Víkingi eru með þriggja stiga forystu á toppi Bestu deildarinnar eftir 5-1 sigur liðsins á Val á Hlíðarenda í kvöld. Óskar Borgþórsson gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu.

Valsmenn hafa verið þokkalega sterkir á tímabilinu en meistararnir í meistaragír og héldu þeir áfram í þeim gír.

Helgi Guðjónsson skoraði á 5. mínútu. Oliver Ekroth kom löngum bolta fram völlinn og á Helga sem skoraði. Rosalega einfalt og leit varnarleikurinn ekkert frábærlega út hjá heimamönnum.

Víkingar héldu áfram að ógna og var röðin komin að Óskari Borgþórssyni sem gerði laglegt mark á 34. mínútu. Hann vann boltann, keyrði upp og smellti honum í netið.

Rúmri mínútu síðar kom hann Víkingum í þriggja marka forystu er hann skallaði fyrirgjöf Ármanns Inga Finnbogasonar í netið.

Aðeins eitt lið á vellinum í fyrri hálfleik og í byrjun síðari fullkomnaði Óskar þrennuna og það með öðru skallamarki sínu eftir fyrirgjöf frá Karli Friðleifi Gunnarssyni.

Tryggvi Hrafn Haraldsson minnkaði muninn á 60. mínútu er hann slapp í gegn.

Víkingar fóru í það reyna klára leikinn. Óskar var nálægt fernunni og þá setti Valdimar Þór Ingimundarson boltann framhjá eftir sendingu frá Elíasi Má Ómarssyni.

Fimmta markið kom á endanum. Karl Friðleifur Gunnarsson fékk boltann inn á teignum og kláraði vel framhjá Frederik Schram.

Alger einstefna hjá Víkingum sem eru með 28 stig á toppnum á meðan Valur er með 15 stig 5. sæti.
Besta karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur R. 10 9 1 0 34 - 6 +28 28
2.    KR 10 8 1 1 38 - 23 +15 25
3.    Fram 9 6 2 1 25 - 16 +9 20
4.    Breiðablik 9 4 3 2 22 - 15 +7 15
5.    Valur 10 5 0 5 19 - 22 -3 15
6.    ÍA 9 3 3 3 12 - 16 -4 12
7.    Keflavík 9 3 2 4 12 - 18 -6 11
8.    KA 9 3 1 5 12 - 15 -3 10
9.    Stjarnan 10 3 1 6 18 - 22 -4 10
10.    Þór 9 2 0 7 7 - 23 -16 6
11.    ÍBV 9 1 2 6 14 - 23 -9 5
12.    FH 9 0 2 7 12 - 26 -14 2
Slapp
banner