„Gríðarleg vonbrigði, ef ég á að segja alveg eins og er,“ sagði Gunnar Heiðar Þorvaldsson, þjálfari HK, eftir 4-1 tap gegn Leikni í Breiðholtinu í dag.
Lestu um leikinn: Leiknir R. 4 - 1 HK
„Þetta var klárlega ekki það sem var lagt upp með fyrir leik og mér finnst búinn að vera góður stígandi í leik okkar, mér finnst við nú ekki alveg byrja þetta mót nægilega vel en mér finnst hafa verið stígandi í síðustu leikjum hjá okkur og einhvernveginn vera nær því sem við viljum gera. Þessi fyrri hálfleikur er náttúrulega bara eitthvað það ótrúlegasta sem ég hef séð, ég vissi ekki að við ætluðum allt í einu að setja inn gjafaleik FM í fyrri hálfleik en það er akkúrat það sem við gerðum,“ hélt hann svo áfram.
Nú þegar sjö leikir eru búnir af mótinu eru HK búnir að vinna fjóra leiki og tapa rest. Allir sigrarnir hafa komið á heimavelli en í þremur útileikjum eru þeir með núll stig og búnir að fá á sig ellefu mörk. Aðspurður hvort það sé eitthvað sem þarf að skoða segir hann:
„Já að sjálfsögðu. Þegar þú nefnir þetta svona þá er þetta náttúrulega erfitt, þetta er vont. Jú við erum frábærir á heimavelli en ef við ætlum að gera eitthvað í þessari deild þá þurfum við að gera eitthvað á útivelli líka.“
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.























