Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
banner
   sun 31. maí 2026 21:53
Brynjar Ingi Erluson
Lengjudeildin: Afturelding fór illa með Fylki í toppbaráttuslag
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
Afturelding 5 - 1 Fylkir
1-0 Andi Hoti ('22 )
2-0 Óðinn Bjarkason ('29 )
3-0 Joacim Emil Godhei Holtan ('31 )
4-0 Bart Kooistra ('38 )
5-0 Andi Hoti ('53 )
5-1 Hlynur Sævar Jónsson ('57 )
Lestu um leikinn

Afturelding er komið á toppinn í Lengjudeild karla en liðið rúllaði yfir Fylki, 5-1, á Malbikstöðinni að Varmá.

Fylkismenn voru á toppnum fyrir þessa umferð og Afturelding í öðru sæti.

Andi Hoti skoraði á 22. mínútu eftir skalla sendingu Arons Elí Sævarssonar. Óðinn Bjarkason tvöfaldaði forystuna sjö mínútum síðar og voru Mosfellingar komnir með þriggja marka forystu eftir rúman hálftíma með marki Joacim Holtan eftir hornspyrnu.

Bart Kooistra setti fjórða markið á 38. mínútu. Jón Vignir Pétursson sendi boltann í gegn og Hlynur Sævar Jónsson horfði bara á boltann áður en Kooistra skoraði.

Hræðilegt hjá Fylkismönnum sem lentu síðan 5-0 undir snemma í þeim síðari er Hoti gerði annað mark sitt.

Hlynur Sævar klóraði í bakkann nokkrum mínútum síðar en lengra komust Fylkismenn ekki.

Afturelding skaust á toppinn með 16 stig en Fylkir er í öðru með 15 stig.
Lengjudeild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Fylkir 6 5 0 1 11 - 3 +8 15
2.    Afturelding 6 4 1 1 17 - 12 +5 13
3.    HK 7 4 0 3 14 - 13 +1 12
4.    Grótta 7 4 0 3 14 - 15 -1 12
5.    Þróttur R. 6 3 1 2 14 - 9 +5 10
6.    Vestri 7 3 1 3 11 - 15 -4 10
7.    Leiknir R. 7 2 3 2 8 - 10 -2 9
8.    Njarðvík 7 2 2 3 6 - 6 0 8
9.    Grindavík 6 1 4 1 7 - 7 0 7
10.    ÍR 7 2 1 4 15 - 17 -2 7
11.    Ægir 7 2 1 4 9 - 11 -2 7
12.    Völsungur 7 0 2 5 4 - 12 -8 2
Slapp
banner