Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
   sun 31. maí 2026 22:51
Brynjar Ingi Erluson
Vináttulandsleikir: Undav með stórleik fyrir Þjóðverja
Deniz Undav var frábær
Deniz Undav var frábær
Mynd: EPA
Deniz Undav mætir í fantaformi á heimsmeistaramótið en hann skoraði tvö og lagði upp eitt í 4-0 sigri Þjóðverja á Finnum í vináttulandsleik í kvöld.

Undav setti fyrsta markið á 34. mínútu og vann síðan boltann snemma í síðari hálfleik.

Níu mínútum síðar bætti Undav við öðru marki sínu áður en Jamal Musiala skoraði laglegt mark við vítateigslínuna.

Undirbúningurinn byrjar vel hjá Þjóðverjum sem ætla sér langt á HM í sumar.

Folarin Balogun tryggði Bandaríkjunum 3-2 sigur á Senegal. Sergino Dest og Christian Pulisic komu Bandaríkjamönnum í 2-0 áður en Sadio Mane skoraði tvö og jafnaði.

Folarin Balogun reyndist síðan hetja bandaríska liðsins með sigurmarkið hálftíma fyrir leikslok.

Úrslit og markaskorarar:

Þýskaland 4 - 0 Finnland
1-0 Deniz Undav ('34 )
2-0 Florian Wirtz ('48 )
3-0 Deniz Undav ('57 )
4-0 Jamal Musiala ('63 )

Bandaríkin 3 - 2 Senegal
1-0 Sergino Dest ('7 )
2-0 Christian Pulisic ('20 )
2-1 Sadio Mane ('44 )
2-2 Sadio Mane ('52 )
3-2 Folarin Balogun ('63 )

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner
banner