Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25105 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR10.03.2025, 07:00

Pétur Theodór og Addi Bomba í Kríu (Staðfest)

Kría hefur styrkt sig verulega fyrir átökin í 4. deild í sumar. Þeir Pétur Theodór Árnason og Arnar Þór Helgason, Addi Bomba, eru komnir til liðsins frá Gróttu.

FRÉTTIR10.03.2025, 06:00

Jose Sanchez yfirgefur Selfoss af persónulegum ástæðum (Staðfest)

Jose Sanchez hefur komist að samkomulagi við um að rifta samningnum hans vegna veikinda í fjölskyldunni. Jose er spænskur miðvörður en hann kom sterkur inn í liðið síðasta sumar. Hann lék 27 leiki og skoraði tvö mörk en liðið vann 2. deild og spilar því í Lengjudeildinni næsta sumar.

FRÉTTIR08.03.2025, 16:22

FH fær tvo erlenda leikmenn (Staðfest)

FH-ingar kynntu tvo nýja leikmenn hjá kvennaliðinu í dag en þær Deja Jaylyn Sandoval og Maya Lauren Hansen eru komnar og munu spila með liðinu á komandi leiktíð.

FRÉTTIR08.03.2025, 07:00

Ásta Hind og Kamilla Í ÍR (Staðfest)

Þær Ásta Hind Ómarsdóttir og Kamilla Gísladóttir hafa skrifað undir samning við ÍR. Ásta er fædd árið 2021. Hún er uppalin í HK en hefur einnig leikið með Fram. Hún kemur til ÍR frá Smára en hún þekkir til í Breiðholtinu þar sem hún lék með ÍR sumarið 2023.

FRÉTTIR07.03.2025, 18:00

Everton sækir framvæmdastjóra frá Leeds (Staðfest)

Everton er að fá framkvæmdastjóra en Angus Kinnear mun hefja störf hjá félaginu 1. júní. Kinnear er 47 ára og kemur frá Leeds þar sem hann hefur starfað frá árinu 2017. Liðið vann sér sæti í úrvalsdeildinni þremur árum síðar og hann var með yfirumsjón yfir eignarhaldsskiptum 49ers Enterprises árið 2023.

FRÉTTIR07.03.2025, 14:09

Þórdís Hrönn í Víking (Staðfest)

Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir er gengin í raðir Víkings og skrifar undir tveggja ára samning. Hún kemur til félagsins frá Val þar sem hún hefur verið síðustu ár. Fótbolti.net fjallaði um það í síðasta mánuði að Þórdísi væri frjálst að fara frá Val og finna sér annað félag. Þórdís er fjórði leikmaðurinn sem Víkingur hefur krækt í þennan veturinn.

FRÉTTIR05.03.2025, 14:00

Ísak Daði í ÍR (Staðfest)

Ísak Daði Ívarsson hefur fengið félagaskipti í ÍR en hann kemur á frjálsri sölu frá ÍR eftir að hann náði samkomulagi um riftun á samningi í Víkinni í vetur. Ísak Daði er kantmaður sem verður 21 árs í júlí. Hann á að baki tíu leik í A-deild og 21 leik í B-deild. Á sínum tíma lék hann tvo leiki með U19 landsliðinu. Hann á tvo leiki með Víkingi í Mjólkurbikarnum, tíu leiki með Keflavík á láni 2023 og svo 12 leiki með Þrótti Reykjavík og níu leiki með Gróttu á láni á síðasta tímabili.

FRÉTTIR05.03.2025, 10:23

Halldór Páll skiptir í ÍBV (Staðfest)

Halldór Páll Geirsson hefur fengið félagaskipti frá KFS í ÍBV. Markmaðurinn lék síðast með ÍBV tímabilið 2022. Hann á að baki 51 leik í efstu deild og alls 168 leiki á ferlinum, langflesta fyrir ÍBV. Hann var aðalmarkmaður liðsins 2017-2021. Halldór Páll, sem er þrítugur, hefur æft með ÍBV síðustu mánuði og er nú einn af þremur markmönnum í leikmannahópi ÍBV. Fyrir voru Jón Kristinn Elíasson og Hjörvar Daði Arnarsson.

FRÉTTIR04.03.2025, 14:00

Berglind Þrastar heim í Hauka (Staðfest)

Berglind Þrastardóttir er gengin í raðir Hauka frá FH og gerir tveggja ára samning við uppeldisfélagið. Hún hélt frá Haukum í FH í glugganum 2022 og hjálpaði liðinu að komast upp í Bestu deildina. Hún spilaði svo tíu leiki með FH í Bestu deildinni 2023 og átta leiki 2024. Hún er fædd árið 2004 og er fyrrum unglingalandsliðskona; á að baki þrjá leiki með U15 og fjóra með U19.

FRÉTTIR03.03.2025, 18:30

20 mest lesnu fréttir vikunnar - Vandræði danska sóknarmannsins

Hér að neðan má sjá lista yfir 20 vinsælustu fréttir Fótbolta.net í síðustu viku, raðað eftir hversu oft þær eru lesnar. Fréttir tengdar enska boltanum eru áberandi á lista vikunnar en hitakerfi í Keflavík, leikmannamál Víkings og viðtal við Óskar Hrafn eru einnig á blaði.

FRÉTTIR03.03.2025, 16:57

Ingi Þór í Grindavík (Staðfest)

Skagamaðurinn Ingi Þór Sigurðsson er farinn frá ÍA á láni í Grindavík. Fótbolti.net fjallaði um það í síðasta mánuði að Ingi vildi leita annað og er nú búinn að finna sér nýtt félag. Ingi er tvítugur, verður 21 árs í næsta mánuði, og hefur allan sinn feril spilað með ÍA. Hann hefur skorað sjö mörk og lagt upp fimm í 49 leikjum í efstu deild. Ingi, sem er yngri bróðir landsliðsmannsins Arnórs Sigurðssonar, lék á sínum tíma tvo leiki með U16. Miðjumaðurinn er samningsbundinn ÍA út tímabilið 2026.

FRÉTTIR03.03.2025, 15:30

Yngri bróðir Kyle McLagan í Gróttu (Staðfest)

Grótta er að undirbúa sig fyrir komandi átök í 2. deild. Í dag tilkynnti félagið að Caden McLagan væri genginn í raðir félagsins. McLagan er Bandaríkjamaður sem verður 23 ára í apríl. Hann er yngri bróðir Kyle sem spilar með Fram í Bestu deildinni.

FRÉTTIR03.03.2025, 14:47

Tobias Thomsen til Breiðabliks (Staðfest)

Danski framherjinn Tobias Thomsen er búinn að skrifa undir samning við Breiðablik og mun spila með liðinu á komandi leiktíð. Fótbolti.net greindi frá yfirvofandi félagaskiptum Danans fyrr í dag. Íslendingar muna eflaust einhverjir eftir Thomsen en hann lék með KR og Val á árunum 2017-2020. Hann varð Íslandsmeistari með Val 2018 og Íslandsmeistari með KR árið 2019. Alls á Tobias 63 leiki í efstu deild Íslandsmótsins og 18 mörk.

FRÉTTIR01.03.2025, 06:00

Tvær erlendar semja við ÍA (Staðfest)

Markvöðurinn Klil Keshwar hefur samið aftur um að spila með ÍA næsta sumar en hún var lykilmaður í liðinu á síðustu leiktíð. Hún spilaði alla leiki liðsins þegar liðið hafnaði í 5. sæti Lengjudeildarinnar. Hún er frá Trínídad og Tóbagó og á landsleiki með þjóð sinni. Hún gekk til liðs við félagið úr bandaríska háskólaboltanum fyrir síðustu leiktíð.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.