FRÉTTIR27.11.2025, 13:26
Aron Jóhannsson hefur verið leystur undan samningi hjá Val og er honum nú frjálst að semja við annað félag. Valur greinir frá tíðindinum með tilkynningu.
Aron, sem er 35 ára sóknarsinnaður miðjumaður, átti eitt ár eftir af samningi sínum við Val. Hann lék framan af á ferlinum sem framherji en spilaði yfirleitt aðeins aftar hjá Val.
Hann kom til félagsins frá Lech Poznan haustið 2021 og var því hjá félaginu í fjögur tímabil. Hann lék sem atvinnumaður í rúman áratug, fyrst hjá AGF í Danmörku, svo AZ í Hollandi, var hjá Werder Bremen í Þýskalandi, Hammarby í Svíþjóð og loks Lech Poznan í Póllandi. Hann lék á sínum tíma 10 leiki með U21 landsliði Íslands, 19 A-landsleiki fyrir Bandaríkin og spilaði á HM 2014.
FRÉTTIR27.11.2025, 09:56
Gígja Valgerður Harðardóttir, fyrirliði Víkings, hefur ákveðið að flytja norður yfir heiðar. Hún yfirgefur því Víking. Hún er kærasta Atla Sigurjónssonar sem kvaddi KR í gær.
Varnarmaðurinn lék fyrst með sameiginlegu liði HK/Víkings og sneri svo aftur í Víking fyrir tímabilið 2024.
Gígja Valgerður er 34 ára og er uppalin hjá Völsungi og varð Íslandsmeistari með Þór/KA árið 2012.
FRÉTTIR26.11.2025, 19:36
Jóhannes Karl Guðjónsson er tekinn við FH og gerir fjögurra ára samning en þetta kemur fram í tilkynningu félagsins. Árni Freyr Guðnason verður aðstoðarmaður hans.
FRÉTTIR26.11.2025, 18:50
Knattspyrnudeild ÍR hefur gengið frá félagaskiptum Halldórs Atla Kristjánssonar frá Augnabliki en hann var kynntur hjá Breiðhyltingum í kvöld.
FRÉTTIR26.11.2025, 17:00
Valur tilkynnti í dag að Christopher Brazell væri orðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla hjá félagiu. Hann var ráðinn til félagsins fyrr á þessu ári og kom þá inn sem afreksþjálfari. Hann verður aðstoðarmaður Hermanns Hreiðarssonar sem var ráðinn til félagsins fyrr í þessum mánuði. Hermann tók við þjálfarastarfinu af Srdjan Tufegdzic og Chris tekur við starfinu af Hauki Páli Sigurðssyni.
Chris kom til Vals eftir að hafa verið hjá Gróttu, bæði sem aðstoðarþjálfari og svo aðalþjálfari. Hann er 33 ára Englendingur sem er með UEFA Pro þjálfaragráðuna og er einn yngsti þjálfarinn til að fá þá gráðu.
FRÉTTIR26.11.2025, 14:26
Atli Sigurjónsson er farinn frá KR, þetta staðfestir félagið með kveðjufærslu á samfélagsmiðlum í dag. Þar kemur fram að Atli sé að flytja til Akureyrar og samkvæmt heimildum Fótbolta.net er hann á leið í Þór.
Atli, sem er 34 ára, er uppalinn hjá Þór. Hann hélt suður og samdi við KR eftir tímabilið 2011 með Þór. Hann vann deildina tvisvar sinnum með KR og bikarinn tvisvar.
Í sumar kom hann við sögu í 17 leikjum og lagði upp fjögur mörk í Bestu deildinni.
FRÉTTIR26.11.2025, 12:30
Aron Snær Friðriksson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Víking en hann kemur til Íslandsmeistaranna frá Njarðvík.
Aron er 28 ára markvörður sem hefur spilað með Breiðabliki, Tindastól, Vestra, Fylki, KR og Njarðvík á sínum ferli.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net var hann á leið til Þróttar þegar tilboð barst frá Víkingi og er hann nú búinn að skrifa undir samning í Víkinni.
FRÉTTIR26.11.2025, 08:00
HK hefur sent frá sér tilkynningu þar sem kemur fram að Bart Kooistra muni ekki spila með liðinu næsta sumar.
Hann er 24 ára gamall hollenskur framherji sem gekk til liðs við félagið síðasta sumar. Hann kom við sögu í 10 leikjum í Lengjudeildinni og skoraði tvö mörk.
FRÉTTIR26.11.2025, 06:00
María Björg Fjölnisdóttir hefur skrifað undir samning við Fylki út árið 2026.
FRÉTTIR25.11.2025, 16:00
Theodór Elmar Bjarnason er ekki lengur aðstoðarþjálfari KR. Hann staðfestir það í samtali við Fótbolta.net í dag.
Elmar er uppalinn KR-ingur sem fór ungur að árum út í atvinnumennsku og var í 17 ár erlendis sem atvinnumaður áður en hann sneri aftur heim árið 2021 og spilaði í þrjú og hálft ár með KR áður en hann lagði skóna á hilluna.
Hann var aðstoðarmaður Óskars Hrafns Þorvaldssonar á liðnu tímabili og var auk þess með 2. flokkinn.
FRÉTTIR25.11.2025, 15:00
HK hefur sent frá sér tilkynningu þar sem Hákon Ingi Jónsson er kvaddur, hann mun ekki spila með liðinu á komandi leiktíð.
Hann er þrítugur sóknarmaður sem uppalinn er hjá Fylki en hefur einnig leikið með HK, ÍA og Fjölni á sínum ferli.
Hann hefur skorað 86 mörk í 339 KSÍ leikjum á ferlinum. Hann lék fjóra U16 landsleiki á sínum tíma. Hann kom einungis við sögu í fimm deildarleikjum með HK í sumar.
FRÉTTIR25.11.2025, 13:30
Viktor Andri Hafþórsson hefur kvatt Þrótt og heldur á önnur mið. Hann gekk til liðs við Þrótt fyrir tímabilið 2024 og skoraði 14 mörk í 54 leikjum fyrir liðið. Hann átti eitt ár eftir af samningi sínum við Þrótt.
<i>„Við viljum þakka Viktori Andra fyrir tíma sinn hjá félaginu og óska honum velfarnaðar í næsta skrefi sínu,"</I> segir í tilkynningu Þróttar.
Sóknarmaðurinn er fæddur árið 2001 og er uppalinn hjá Fjölni. Hann fór í Keflavík fyrir tímabilið 2023 og svo í Þrótt eftir það tímabil. Á sínum tíma lék hann fimm leiki fyrir U17 landsliðið.
FRÉTTIR25.11.2025, 11:57
<i>„Eftir 15 ár í Keflavíkurtreyjunni er komið að kaflaskilum hjá fyrirliðanum okkar Kristrúnu Ýr,"</I> segir í tilkynningu Keflavíkur.
Fyrirliðinn Kristrún Ýr Holm hefur ákveðið að yfirgefa Keflavík og halda á önnur mið.
Hún er fædd árið 1995 og á að baki 273 leiki, alla með Keflavík, og hefur í þeim skorað 13 mörk.
FRÉTTIR25.11.2025, 11:15
FH hefur krækt í unglingalandsliðsmanninn Axel Marcel Czernik frá Breiðabliki.
Hann skrifar undir samning við FH sem gildir út tímabilið 2028.
Hann er fæddur árið 2009 og á að baki þrjá leiki með U15 landsliðinu.
Leikina spilaði hann í október 2023 á æfingamóti í Póllandi.
Hann lék með 2. og 3. flokki Breiðabliks í sumar.
FRÉTTIR25.11.2025, 10:30
Margrét Brynja Kristinsdóttir er gengin í raðir Vals en hún kemur til félagsins frá FH. Margrét, sem er 19 ára miðjumaður, skrifar undir tveggja ára samning á Hlíðarenda.
Hún er uppalin í Breiðabliki en fór í FH fyrir tímabilið 2023. Hún á að baki 97 KSÍ leiki og hefur í þeim skorað 14 mörk. Þá á hún að baki 37 leiki fyrir yngri landslið Íslands og hefur í þeim skorað átta mörk.
Hún spilaði ekki leik í um þrjá mánuði í sumar en kom þrátt fyrir það við sögu í 15 leikjum í Bestu deildinni og skoraði tvö mörk. FH endaði í öðru sæti deildarinnar og Valur því sjötta. Hún skoraði sigurmarkið gegn Val í undanúrslitum Mjólkurbikarsins, skoraði á 119. mínútu leiksins.
FRÉTTIR24.11.2025, 18:33
Alex Freyr Elísson skipti yfir til Njarðvíkur í dag eftir að hafa leikið fyrir Fram í tvö tímabil. Hann er annar leikmaðurinn sem gengur til liðs við Njarðvík eftir að Davíð Smári Lamude tók við þjálfun liðsins.
FRÉTTIR24.11.2025, 18:03
Stjarnan er búin að staðfesta ráðningu á Hrannari Boga Jónssyni sem nýjum aðstoðarþjálfara meistaraflokks karla í fótbolta.
FRÉTTIR24.11.2025, 17:23
HK tilkynnti rétt í þessu að Dominik Radic væri genginn í raðir félagsins. Hann skrifar undir þriggja ára samning við félagið.
Hann er 29 ára króatískur framherji sem fæddur er í Hannover í Þýskalandi.
Hann kom til Njarðvíkur fyrir tímabilið 2024 og lék undir stjórn Gunnars Heiðars Þorvaldssonar, nýs þjálfara HK, síðustu tvö tímabil.
FRÉTTIR24.11.2025, 17:10
Alex Freyr Elísson er genginn í raðir Njarðvíkur en hann kemur til félagsins frá Fram. Hann skrifar undir tveggja ára samning við félagið.
Alex er 28 ára hægri bakvörður sem hefur einnig leikið með Breiðabliki og KA á sínum ferli.
Hann var í takmörkuðu hlutverki hjá Fram á tímabilinu, kom einungis við sögu í níu leikjum í deild og bikar eftir að hafa skorað sex mörk í 22 leikjum í Bestu deildinni tímabilið 2024.
FRÉTTIR24.11.2025, 15:39
Swansea City hefur ráðið Portúgalann Vítor Matos sem nýjan stjóra. Matos var í þjálfarateymi Liverpool en tók við portúgalska B-deildarliðinu Maritimo í júní.
Swansea er í 20. sæti ensku Championship-deildarinnar og rak Alan Sheehan fyrr í þessum mánuði. Félagið vildi ráða hinn sænska Kim Hellberg sem ákvað hinsvegar að taka við Middlesbrough.