Mainoo, Konate og Mac Allister eftirsóttir - Tonali með heimþrá - Semenyo til Liverpool?
fimmtudagur 13. nóvember
Undankeppni HM
fimmtudagur 6. nóvember
Sambandsdeildin
miðvikudagur 29. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
sunnudagur 26. október
Besta-deild karla - Efri hluti
föstudagur 24. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
fimmtudagur 23. október
Sambandsdeildin
miðvikudagur 22. október
Evrópukeppni unglingaliða
mánudagur 20. október
Besta-deild karla - Efri hluti
miðvikudagur 15. október
Evrópubikar kvenna
þriðjudagur 14. október
Undankeppni EM U21
mánudagur 13. október
Undankeppni HM
laugardagur 11. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
föstudagur 10. október
Undankeppni HM
Undankeppni EM U21
fimmtudagur 9. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
miðvikudagur 8. október
Evrópubikar kvenna
mánudagur 6. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
sunnudagur 5. október
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
laugardagur 4. október
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 3. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
fimmtudagur 2. október
Sambandsdeildin
miðvikudagur 1. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
Evrópukeppni unglingaliða
þriðjudagur 30. september
Besta-deild kvenna - Efri hluti
mánudagur 29. september
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 28. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
laugardagur 27. september
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 26. september
Fótbolti.net bikarinn
mánudagur 22. september
Besta-deild karla - Efri hluti
miðvikudagur 17. september
Lengjudeild karla - Umspil
mánudagur 15. september
Besta-deild karla
fimmtudagur 11. september
Besta-deild karla
þriðjudagur 9. september
Undankeppni HM
mánudagur 8. september
Undankeppni EM U21
sunnudagur 7. september
Besta-deild kvenna
laugardagur 6. september
laugardagur 8. nóvember
Championship
Swansea 1 - 4 Ipswich Town
West Brom 2 - 1 Oxford United
Millwall 1 - 1 Preston NE
Southampton 3 - 1 Sheff Wed
Blackburn 1 - 2 Derby County
Norwich 1 - 2 Leicester
Hull City 3 - 2 Portsmouth
Middlesbrough 2 - 1 Birmingham
Wrexham 1 - 0 Charlton Athletic
Sheffield Utd 0 - 0 QPR
Stoke City 0 - 1 Coventry
Úrvalsdeildin
Everton 2 - 0 Fulham
Chelsea 0 - 0 Wolves
West Ham 3 - 2 Burnley
Tottenham 2 - 2 Man Utd
Sunderland 2 - 2 Arsenal
WSL - Women
Man Utd W 0 - 1 Aston Villa W
Arsenal W 1 - 1 Chelsea W
Division 1 - Women
Nantes W 2 - 1 Le Havre W
Strasbourg W 1 - 0 Saint-Etienne W
PSG W 0 - 0 Fleury W
Bundesligan
Gladbach 3 - 1 Köln
Union Berlin 2 - 2 Bayern
Hoffenheim 3 - 1 RB Leipzig
Leverkusen 6 - 0 Heidenheim
Hamburger 1 - 1 Dortmund
Frauen
Wolfsburg W 2 - 3 Eintracht Frankfurt W
Serie A
Como 0 - 0 Cagliari
Parma 0 - 2 Milan
Lecce 0 - 0 Verona
Juventus 0 - 0 Torino
Serie A - Women
Inter W 2 - 2 Sassuolo W
Milan W 2 - 1 Juventus W
Eliteserien
Sarpsborg 0 - 2 Fredrikstad
Viking FK 3 - 0 Ham-Kam
Úrvalsdeildin
Nizhnyi Novgorod 0 - 0 Rubin
Sochi 0 - 1 Rostov
Dynamo Mkh 0 - 1 CSKA
Dinamo 1 - 2 Akron
La Liga
Sevilla 1 - 0 Osasuna
Atletico Madrid 3 - 1 Levante
Girona 1 - 0 Alaves
Espanyol 0 - 0 Villarreal
Damallsvenskan - Women
Djurgarden W 0 - 2 Hacken W
Brommapojkarna W 3 - 0 AIK W
Norrkoping W 0 - 4 Malmo FF W
Pitea W 0 - 1 Rosengard W
Elitettan - Women
Bollstanas W 1 - 2 KIF Orebro W
Umea W 3 - 2 Trelleborg W
Hacken-2 W 1 - 1 Team TG W
Gamla Upsala W 1 - 5 Eskilstuna United W
Sunnana W 1 - 2 Elfsborg W
Mallbacken W 0 - 4 Jitex W
Orebro SK W 1 - 0 Uppsala W
Ekkert mark hefur verið skorað
mið 01.maí 2024 16:00 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

Spá þjálfara í 2. deild: 4. sæti

Fótbolti.net kynnir liðin sem leika í 2. deild í sumar eitt af öðru eftir því hvar þeim er spáð. Við fengum alla þjálfara liðanna í deildinni til að spá fyrir sumarið og fengu liðin því stig frá 1-11 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Það var gríðarlegt jafnræði á meðal liðanna í öðru til fimmta sæti í spánni en Víkingi Ólafsvík er spáð fjórða sæti.

Víkingar fagna marki eftir síðasta tímabil.
Víkingar fagna marki eftir síðasta tímabil.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Brynjar Kristmundsson, þjálfari Ólsara.
Brynjar Kristmundsson, þjálfari Ólsara.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gary Martin er mættur í Ólafsvík.
Gary Martin er mættur í Ólafsvík.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Björn Axel Guðjónsson fagnar marki.
Björn Axel Guðjónsson fagnar marki.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Dani Ndi er með stóra og mikla ferilskrá.
Dani Ndi er með stóra og mikla ferilskrá.
Mynd/Getty Images
Luke Williams er öflugur.
Luke Williams er öflugur.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hvað gera Ólsarar í sumar?
Hvað gera Ólsarar í sumar?
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Spáin:
1.
2.
3.
4. Víkingur Ó. 94 stig
5. Þróttur V., 92 stig
6. Ægir, 78 stig
7. Höttur/Huginn, 56 stig
8. KFG, 54 stig
9. Völsungur, 37 stig
10. Reynir S., 35 stig
11. KF, 27 stig
12. Kormákur/Hvöt, 13 stig

4. Víkingur Ó.
Víkingur Ólafsvík er ótrúlega skemmtilegt félag og það hefur verið frábært að fylgjast með Ólsurum síðustu 20 árin eða svo. Undir stjórn Ejub Purisevic lék Víkingur í efstu deild en það var afar merkilegt afrek þegar litið er til baka. Síðustu ár hafa ekki verið eins frábær og þegar Ejub var með liðið en Ólsarar eru núna á leið inn í sitt þriðja tímabil í röð í 2. deild. Fyrst var niðurstaðan sjöunda sæti, svo fimmta sæti en hvað núna? Taka þeir annað skref fram á við og fara í alvöru baráttu um að komast aftur á þann stað sem þeir vilja að minnsta kosti vera á - í Lengjudeildinni?

Þjálfarinn: Brynjar Kristmundsson tók við stjórn Ólsara af Guðjóni Þórðarsyni eftir tímabilið 2022. Brynjar er fyrrum leikmaður liðsins og hafði verið aðstoðarþjálfari í þrjú ár áður en hann tók við sem aðalþjálfari. Brynjar er uppalinn á Snæfellsnesi og lék sína fyrstu meistaraflokksleiki með Ólsurum árið 2008. Hann fékk góðan skóla hjá Gauja Þórðar og getur klárlega byggt á sínu fyrsta tímabili með liðið - síðasta sumri.

Sjá einnig:
Alltaf með glósubókina á lofti þegar hann vann með Gauja Þórðar

Stóra spurningin: Hvað gerir Gary Martin?
Fyrir stuttu var það tilkynnt að Englendingurinn Gary Martin væri mættur á Ólafsvík eftir að hafa verið í kuldanum á Selfossi. Gary er ekki sami leikmaður og hann var fyrir tíu árum síðan eða fimm árum síðan, en hann enn góður fótboltamaður. Ef hann er upp á sitt besta, þá getur hann verið ansi góður í þessari deild og ætti að geta hjálpað Ólsurum talsvert í baráttunni í efri hlutanum.

Lykilmenn
Björn Axel Guðjónsson: Sóknarmaðurinn var virkilega góður á síðasta tímabili og skoraði þá 13 mörk í 21 leik. Hann þekkir það vel að skora í þessari deild og vonandi fyrir Ólsara verður hann í góðu stuði fyrir framan markið í sumar.

Daniel Arnaud Ndi: Er mættur á Ólafsvík eftir að hafa leikið með Hetti/Hugin síðasta sumar. Þessi 27 ára gamli miðjumaður á ansi áhugaverðan feril að baki en hann á til að mynda leiki með Sporting Gijon í spænsku úrvalsdeildinni. Hann hafði verið að leika í neðri deildunum á Spáni áður en hann kom til Íslands. Ndi á fimm A-landsleiki að baki fyrir Kamerún en það gerist ekki á hverjum degi að leikmaður með svona feril komi til Íslands, hvað þá í 2. deild. Hann kom til landsins í gegnum umboðsmanninn Nacho Poveda sem spilaði með Hetti/Hugin sumarið 2021.

Luke Williams: Reyndur miðjumaður sem er á leið inn í sitt þriðja tímabil með Ólsurum. Hann ólst upp hjá Middlesbrough og steig sín fyrstu skref þar. Hann byrjaði sem táningur að spila með liðinu í Championship-deildinni, næst efstu deild Englands. Hann spilaði alls 34 leiki með Middlesbrough í Championship. Hann spilaði svo með Hartlepool, Scunthorpe, Coventry, Peterborough, Northampton og Gateshead en leikur núna listir sínar á Ólafsvík.

Komnir:
Daniel Arnaud Ndi frá Hetti/Hugin
Eyþór Örn Eyþórsson frá Val (á láni)
Gabriel Þór Þórðarson frá ÍA (á láni)
Gary Martin frá Selfossi (á láni)
Ivan Rodrigo Moran Blanco frá KFA
Luis Alberto Diez Ocerin frá Ítalíu
Ómar Castaldo Einarsson frá Þór
Stefán Óli Hallgrímsson frá Völsungi

Farnir:
Abdelhadi Khalok El Bouzarrari í KFA
Carlos Casanovas Ruiz til Spánar
Guðbjörn Smári Birgisson í Hvíta riddarann
Gunnar Bragi Jónasson í Skallagrím
Ingólfur Sigurðsson í KH
Ísak Máni Guðjónsson í ÍA
Mikael Hrafn Helgason í Kára

Þjálfarinn segir - Brynjar Kristmundsson
„Sumarið leggst mjög vel í okkur Ólafsvíkinga og erum við ótrúlega spenntir að byrja. Ég held að við séum svona eitt af átta liðum sem stefnir að því að fara upp úr þessari deild sem gerir þessa deild mjög svo áhugaverða. Fjórða sætið væri skref fram á við frá því í fyrra en við viljum miklu meira en það."

Fyrstu þrír leikir Víkinga:
4. maí, Víkingur Ó. - Völsungur (Ólafsvíkurvöllur)
11. maí, KFA - Víkingur Ó. (Fjarðabyggðarhöllin)
18. maí, Víkingur Ó. - Þróttur V. (Ólafsvíkurvöllur)
Athugasemdir
banner