Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 01. október 2020 18:19
Elvar Geir Magnússon
Fossvogi
Byrjunarlið Víkings og KR: Sölvi á bekknum - Guðjón í marki KR
Varamarkvörðurinn Guðjón Orri Sigurjónsson ver mark KR í kvöld.
Varamarkvörðurinn Guðjón Orri Sigurjónsson ver mark KR í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Klukkan 19:15 hefst leikur Víkings og KR í Pepsi Max-deild karla. Heimavöllur hamingjunnar stendur ekki undir nafni í kvöld. Hamingja er ekki orð sem lýsir gengi þessara liða.

Varamarkvörðurinn Guðjón Orri Sigurjónsson ver mark KR í kvöld þar sem Beitir Ólafsson fékk gríðarlega umtalað rautt spjald í tapinu gegn Fylki.

Þrjár breytingar á byrjunarliði KR frá síðasta leik. Auk markvarðarbreytingarinnar þá koma Kennie Chopart og fyrirliðinn Óskar Örn Hauksson inn fyrir Arnór Svein Aðalsteinsson og Kristján Flóka Finnbogason.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum

Kári Árnason er enn á meiðslalista Víkinga og Sölvi Ottesen byrjar á bekknum.

Byrjunarlið Víkings:
1. Ingvar Jónsson (m)
6. Halldór Smári Sigurðsson (f)
7. Erlingur Agnarsson
13. Viktor Örlygur Andrason
15. Kristall Máni Ingason
17. Atli Barkarson
19. Adam Ægir Pálsson
20. Júlíus Magnússon
22. Ágúst Eðvald Hlynsson
24. Davíð Örn Atlason
28. Halldór Jón Sigurður Þórðarson

Byrjunarlið KR:
13. Guðjón Orri Sigurjónsson (m)
4. Arnþór Ingi Kristinsson
11. Kennie Chopart
14. Ægir Jarl Jónasson
16. Pablo Punyed
19. Kristinn Jónsson
22. Óskar Örn Hauksson (f)
23. Atli Sigurjónsson
25. Finnur Tómas Pálmason
28. Hjalti Sigurðsson
29. Stefán Árni Geirsson

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner