Raheem Sterling átti frábæran leik er Manchester City lagði Burnley að velli í deildabikarnum í gærkvöldi.
Hann nældi sér þó í gult spjald fyrir tæklingu á Matt Lowton, hægri bakverði Burnley. Lowton lá eftir í jörðinni nálægt varamannabekkjunum og sagði Sterling honum að standa upp. Þá ákvað Sean Dyche, stjóri Burnley, að skera sig í leikinn.
„Stattu upp," sagði Sterling og þá kallaði Dyche: „Ertu viss? Þú hefur eytt hálfri ævinni á jörðinni."
Orðaskipti heyrast mun betur núna í beinum útsendingum þar sem ekki eru spiluð áhorfendahljóð.
Raheem Sterling tackle on Matt Lowton and Sean Dyche's thoughts on the matter from r/soccer
Athugasemdir