Hægri bakvörðurinn Marco Palestra er gríðarlega eftirsóttur eftir að hafa átt magnað tímabil í Serie A þar sem hann lék á láni með Cagliari.
Palestra er aðeins 21 árs gamall og tókst að ryðja sér leið inn í ítalska landsliðið með frábærri frammistöðu á deildartímabilinu.
Palestra er samningsbundinn Atalanta og er félagið reiðubúið til að selja hann fyrir rétta upphæð, eða því sem nemur 50 milljónum evra.
Ítalíumeistarar Inter hafa mikinn áhuga í leit sinni að arftaka fyrir Denzel Dumfries, en eru ekki taldir vera tilbúnir að borga meira en 40 milljónir fyrir.
Ensku úrvalsdeildarfélögin Manchester City, Arsenal og Newcastle eru einnig meðal þeirra sem hafa verið nefnd til sögunnar sem áhugasöm.
23.05.2026 23:00
Kenan Yildiz og Nico Paz verðlaunaðir á lokahófi Serie A



