Fotbolti.net
05.01.22 - 18:34
Jóhann Þór Hólmgrímsson

2054 dögum síðar: Alves byrjar hjá Barca

2054 dögum síðar: Alves byrjar hjá Barca
Canon

Mynd: EPA

Leikur Linares og Barcelona í spænska konungsbikarnum er nýhafinn en það vekur athygli að Dani Alves er í fyrsta sinn í byrjunarliðinu hjá Barcelona á þessari leiktíð.
Þessi 38 ára gamli Brasilíumaður gekk til liðs við Barcelona í nóvember en fékk ekki leikheimild fyrr en félagskiptaglugginn opnaði núna um áramótin.

Alves þekkir vel til hjá Barcelona en hann var áður á mála hjá félaginu frá 2008-2016. Hann var þá samherji Xavi sem er núverandi stjóri félagsins. Síðast var hann í liði Barcelona í keppnisleik þegar liðið mætti Sevilla í úrslitaleik bikarsins árið 2016.

Linares leikur í þriðju efstu deild en liðið lagði Alaves í síðustu umferð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.