Fotbolti.net
05.06.21 - 16:24
Jóhann Þór Hólmgrímsson

2. deild: Öruggur sigur Hauka - Fjarðabyggð og Njarðvík skildu jöfn

Tómas Leó Ásgeirsson

Tómas Leó Ásgeirsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét

Haukar unnu öruggan 3-0 sigur á Magna á heimavelli í fimmtu umferð 2. deildar karla í dag. Fjarðabyggð fékk Njarðvíkinga í heimsókn en liðin skildu jöfn, 1-1.
Haukar fóru inn til búningsherbergja í hálfleik með 1-0 forystu en Sander Jonassen Foro kom þeim yfir á 35. mínútu. Tómas Leó Ásgeirsson og Gísli Þröstur Kristjánsson bættu við einu marki hvor í síðari hálfleik,

Haukar eru í 7. sæti með sjö stig. Magni er með fjögur stig í 9. sæti eftir fjóra leiki. Njarðvík er í 6. sæti með 7 stig og Fjarðabyggð í 11. sæti með tvö stig

Haukar 3 - 0 Magni
1-0 Sander Jonassen Foro ('35)
2-0 Tómas Leó Ásgeirsson ('68)
3-0 Gísli Þröstur Kristjánsson ('73)

Fjarðabyggð 1-1 Njarðvík
1-0 Arnór Sölvi Harðarson ('73)
1-1 Andri Fannar Freysson ('85, víti)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.