Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 05. september 2022 18:30
Brynjar Ingi Erluson
Lewandowski með vegleg laun hjá Barcelona
Robert Lewandowski
Robert Lewandowski
Mynd: EPA
Pólski framherjinn Robert Lewandowski mun þéna ágætlega hjá spænska félaginu Barcelona en hann gerði fjögurra ára samning við klúbbinn í sumar.

Barcelona keypti Lewandowski frá Bayern München fyrir 50 milljónir evra eftir erfiðar viðræður og var hann síðan kynntur í æfingaferð liðsins í Bandaríkjunum.

Laun framherjans voru opinberuð í spænskum fjölmiðlum í dag en hann mun þéna ágætlega næstu árin.

Fyrir þetta tímabil fær hann 10 milljónir evra eftir skatt en laun hans hækka verulega næstu árin.

Annað árið fær hann 13 milljónir evra og svo þriðja árið 16 milljónir evra. Barcelona setti þó klásúlu fyrir þriðja árið en ef hann spilar minna en 55 prósent af leikjunum á félagið möguleika á að rifta samningnum.

Hann fær þá 13 milljónir evra fyrir síðasta ár samningsins. Frenkie de Jong er launahæsti leikmaður Barcelona með 18 milljónir evra í árslaun, en Barcelona er í viðræðum við leikmanninn um að launalækkun.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner