Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 05. desember 2019 23:35
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Einkunnir Arsenal og Brighton: Maupay bestur - Luiz og Willock verstir
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Arsenal tapaði á heimavelli gegn Brighton í kvöld. Adam Webster kom Brighton yfir í fyrri hálfleik en Alexandre Lacazette jafnaði metin í upphafi seinni hálfleiks.

Þegar tíu mínútur lifðu leiks kom Neal Maupay Brighton yfir á ný eftir fyrirgjöf frá Aaron Mooy. Matty Ryan varði í þrígang meistaralega frá leikmönnum Arsenal og átti mikinn þátt í sigrinum.

Ryan, Webster, Mooy og Aaron Connolly fá allir átta í einkunn hjá Sky Sports fyrir frammistöðuna í kvöld. Neal Maupay var valinn maður leiksins og fær níu í einkunn.

Hjá Arsenal fá Lacazette og Pierre-Emerick Aubameyang hæstu einkunn eða sjö. David Luiz og Joe Willock fá lægstu einkunn, fimm. Þá fær Nicolas einnig sjö fyrir innkomu sína af bekknum hjá Arsenal.

Einkunnir Sky Sports:
Arsenal: Leno (6), David Luiz (5), Kolasinac (6), Bellerin (6), Sokratis (6), Xhaka (6), Willock (5), Ozil (6), Aubameyang (7), Torreira (6), Lacazette (7).

Varamenn: Tierney (6), Pepe (7)

Brighton: Ryan (8), Webster (8), Stephens (7), Dunk (7), Propper (7), Burn (7), Mooy (8), Alzate (7), Maupay (9), Gross (7), Connolly (8).

Varamenn: Montoya (6)

Maður leiksins: Neal Maupay
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner