Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 05. desember 2021 15:26
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Brands hættir sem yfirmaður fótboltamála hjá Everton
Mynd: Getty Images
Marcel Brands er hættur sem yfirmaður fótboltamála hjá Everton. Það hefur ekkert gengið hjá félaginu að undanförnu en eftir fína byrjun hefur liðið ekki unnið í átta síðustu leikjum.

Brands hættir aðeins sjö mánuðum eftir að hafa skrifað undir þriggja ára samning við félagið. Hann náði samkomulagi við eiganda félagsins um að fá borgað út þetta tímabil.

Hann var yfirmaður fótboltamála hjá AZ Alkmaar þegar Louis Van Gaal stýrði liðinu til sigurs í deildinni árið 2009 og síðan gekk Brands til liðs við PSV næstu 8 árin á eftir.

Það hefur ekki gengið sem skildi að smíða saman lið hjá Everton en liðið hefur eytt í kringum 300 milljónir punda í leikmannakaup með Brands sem yfirmann fótboltamála.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner