banner
   fös 06. nóvember 2020 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Chelsea haldið hreinu fimm leiki í röð í fyrsta sinn í áratug
Mynd: Getty Images
Chelsea hefur náð góðum takti að undanförnu þar sem Edouard Mendy, Thiago Silva og Ben Chilwell virðast vera búnir að laga vandræðaganginn í vörninni.

Chelsea hélt hreinu í sigri gegn Rennes í vikunni og var það í fimmta sinn í röð sem er mikil framför frá upphafi tímabils þegar vörnin líktist gatasigti. Samkvæmt frétt BT Sport er þetta í fyrsta sinn sem Chelsea heldur hreinu fimm leiki í röð í áratug.

Mendy hefur verið frábær frá komu sinni til Chelsea og er hann búinn að halda hreinu í sex af fyrstu sjö leikjum sínum hjá félaginu. Það er jafn góð byrjun og hjá Petr Cech þegar hann kom fyrst til Chelsea.

Silva og Chilwell hafa einnig verið frábærir eftir að hafa komið frá PSG og Leicester.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner