Fotbolti.net
06.12.21 - 21:05
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Kovacic byrjaður að æfa - Ekki með gegn Zenit

Kovacic byrjaður að æfa - Ekki með gegn Zenit
Canon

Mynd: EPA

Það eru mikil meiðslavandræði hjá Chelsea þessa dagana en félagið fékk góðar fréttir er Mateo Kovacic miðjumaður liðsins er byrjaður að æfa.
Hann hefur misst af síðustu 8 leikjum eftir að hafa meiðst á æfingu í október.

Hann verður hinsvegar ekki klár fyrir leikinn gegn Zenit í Rússlandi í Meistaradeildinni á miðvikudaginn. Chelsea er komið áfram en þarf að vinna Zenit til að tryggja sér efsta sætið í riðlinum.

Chelsea vonast til að hann verði klár í slaginn gegn Leeds á laugardaginn í deildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.