Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   fös 07. janúar 2022 22:30
Victor Pálsson
18 ára og segist klár í að byrja á HM fyrir Bandaríkin
Mynd: Getty Images
Ricardo Pepi, nýjasti leikmaður Augsburg, telur að hann sé klár í að leiða framlínu Bandaríkjanna á HM 2022 í Katar.

Þetta eru ansi stór ummæli fyrir 18 ára gamlan leikmann sem var keyptur til Augsburg frá FC Dallas í janúar.

Pepi kostaði Augsburg 18 milljónir evra en hann skoraði 15 mörk í 55 leikjum fyrir Dallas í MLS-deildinni frá 2019 til 2022.

Pepi er nú þegar orðinn landsliðsmaður Bandaríkjanna en hann á að baki þrjá landsleiki og hefur í þeim skorað þrjú mörk.

„Já ég trúi því að ef ég held áfram að leggja mig fram og sýna mín gæði þá get ég byrjað," sagði Pepi í samtali við ESPN.

„Félagaskiptin sína hversu stórt Dallas horfði á mig og trúna sem Augsburg hefur á mér. Ég vildi gera þetta á þessu ári því ég tel mig vera tilbúinn."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner