fös 07. ágúst 2020 10:22
Magnús Már Einarsson
Tobias Thomsen farinn frá KR
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Danski framherjinn Tobias Thomsen hefur leikið sinn síðasta leik fyrir KR en hann er að ganga til liðs við félag í næstefstu deild í heimalandi sínu.

„Tobias er búinn að gera starsflokasamning við KR og er að flytja heim til Danmerkur og spila með liði þar," sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, við Fótbolta.net í dag.

Tobias sagði í samtali við danska fjölmiðla á dögunum að hann vildi fara aftur á heimaslóðir og spila í Danmörku í vetur en nýtt tímabil hefst þar á næstu vikum.

Hinn 27 ára gamli Tobias spilaði með KR 2017, 2019 og í ár en árið 2018 lék hann með Val. Hann hefur skorað 18 mörk í 63 leikjum í Pepsi-deildinni á ferli sínum.

Félagaskiptaglugginn á Íslandi er opin til mánaðarmóta og Rúnar segir að KR muni mögulega bæta við leikmanni eftir að Tobias er farinn.

„Auðvitað erum við að skoða markaðinn og sjá hvað er í boði og sjá hvað við getum gert. Það væri gott að fá einhvern inn í staðinn því það er slæmt að missa hann. Við þurfum að biða og sjá. Markaðurinn erfiður en við höfum augu og eyru opin," sagði Rúnar við Fótbolta.net.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner