Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 07. október 2020 06:00
Victor Pálsson
Draxler íhugaði að yfirgefa PSG
Mynd: Getty Images
Julian Draxler, leikmaður Paris Saint-Germain, íhugaði að yfirgefa félagið í sumar eftir ansi erfitt tímabil á síðustu leiktíð.

Draxler hefur spilað 145 leiki fyrir PSG og skorað í þeim 22 mörk en kom aðeins við sögu í 11 deildarleikjum á síðustu leiktíð.

Þessi 27 ára gamli leikmaður skoðaði eigin stöðu í sumar en fann ekki rétta tækifærið.

„Síðasta tímabil gekk ekki svo vel. Bæði íþróttalega og fyrir mig vegna meiðsla, svo endaði leiktíðin vegna kórónuveirunnar. Þetta er tímabil sem ég má gleyma," sagði Draxler.

„Í sumar þá íhugaði ég að prófa eitthvað nýtt. Að lokum vegna veirunnar þá var erfitt fyrir mig að finna félag þar sem allt passaði saman."

„Það gerðist ekki svo að lokum ákvað ég að stökkva ekki á það tækifæri og mun berjast fyrir mínu sæti í París."

Athugasemdir
banner
banner
banner