Rúmenar mæta Íslandi í umspili fyrir EM á Laugardalsvelli klukkan 18:45 annað kvöld. Mirel Radoi, landsliðsþjálfari Rúmena, hefur prófað fleiri en eitt leikkerfi að undanförnu með Rúmenum.
Samkvæmt fjölmiðlum í Rúmeníu er líklegt að Radoi spili 4-4-2 með tígulmiðju á morgun líkt og gegn Norður-Írum í síðasta mánuði en hann gæti einnig spilað 4-3-3.
Samkvæmt fjölmiðlum í Rúmeníu er líklegt að Radoi spili 4-4-2 með tígulmiðju á morgun líkt og gegn Norður-Írum í síðasta mánuði en hann gæti einnig spilað 4-3-3.
Rúmenskir fjölmiðlar spá því að Ianis Hagi, sóknarmiðjumaður Rangers og sonur goðsagnarinnar Gheorghe Hagi, byrji á bekknum og komi inn á í síðari hálfleik.
Mirel Radoi, landsliðsþjálfari Rúmena, mun líklega treysta á reynslumeiri og líkamlega sterkari miðjumenn en Hagi til að byrja með.
Vlad Chiriches, fyrirliði Rúmena, meiddist í leik með Sassuolo í Serie A um síðustu helgi og það er áfall fyrir liðið.
Hér að neðan má sjá líklegt lið Rúmeníu.
Athugasemdir