Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 08. janúar 2020 20:09
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Rodgers staðfestir að Ndidi fari í aðgerð - Frá í mánuð
Mynd: Getty Images
Brendan Rodger, stjóri Leicester, hefur staðfest að Wilfried Ndidi missi af næstu leikjum liðsins.

Ndidi er að fara í aðgerð og gæti verið frá í allt að mánuð. Ndidi varð fyrir meiðslum á æfingu en Rodgers sagði ekki nákvæmlega hvað hefði gerst.

„Wilf fékk högg á æfingu í gær sem þýðir að hann þarf að fara í litla aðgerð á morgun," sagði Rodgers.

„Hann verður frá í nokkrar vikur en þetta er ekki mjög alvarlegt. Við vonumst til að hann verði klár snemma í febrúar."

Ef Ndidi verður frá út þennan mánuð missir hann af fimm leikjum með Leicester.
Athugasemdir
banner
banner