Vinicius Jr orðaður við Man City - Bayern vill Gordon - Arsenal, Liverpool og Barcelona hafa áhuga á Barcola
   fös 08. maí 2026 21:17
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Besta deildin: Ótrúleg endurkoma hjá KR - Dramatík í Úlfarsárdal og Keflavík vann á Skaganum
Markaveisla á Kópavogsvelli
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jakob Byström
Jakob Byström
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Frábær sigur hjá Keflvíkingum
Frábær sigur hjá Keflvíkingum
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Gunnarsson
Það var mikið um að vera í Bestu deildinni í kvöld en fimm hörkuleikir voru á dagskrá.

Breiðablik fékk FH í heimsókn. Ásgeir Helgi Orrason kom Blikum yfir eftir 25 mínútna leik. Undir lok fyrri hálfleiks átti Höskuldur Gunnlaugsson skot sem fór af varnarmanni og til Kristófers Inga Kristinssonar sem bætti öðru marki Blika við.

FH-ingar komu sterkir út í seinni hálfleikinn. Gils Gíslason minnkaði muninn snemma í seinni hálfleiknum. FH fékk síðan vítaspyrnu þegar Ívar Örn Árnason gerðist brotlegur inn á teignum og Kjartan Kári Halldórsson jafnaði metin.

Gils fullkomnaði síðan endurkomu FH-inga eftir laglega sendingu frá Úlfi Ágústi Björnssyni.

Höskuldur Gunnlaugsson jafnaði metin úr vítaspyrnu sem liðið fékk eftir að Úlfur braut á Kristófer.

Stjarnan fékk topplið KR í heimsókn. Heimamenn komust yfir undir lok fyrri hálfleiks þegar Örvar Eggertsson skoraði eftir fyrirgjöf frá nafna sínum Örvari Loga Örvarsyni.

Benedikt Warén tvöfaldaði forystu Stjörnumanna í uppbótatíma fyrri hálfleiksins. KR komst inn í leikinn eftir klukkutíma þegar Aron Sigurðarson skoraði laglegt skallamark eftir sendingu frá Luke Rae.

Luke Rae var síðan á ferðinni stuttu síðar þegar hann jafnaði metin eftir sendingu frá Gabríel Hrannari Eyjólfssyni. Ástbjörn Þórðarson fullkomnaði endurkomu KR þegar hann skoraði undir lokin.

Örvar Eggertsson var nálægt því að jafna metin í blálokin en Halldór Snær Georgsson varði stórkostlega og KR fór með sigur af hólmi.

Nýliðar Keflavíkur heimsótti Skagamenn sem hafa farið hægt af stað á tímabilinu. Keflvíkingar voru frábærir í kvöld og Ásgeir Páll Magnússon kom liðinu yfir. Axel Ingi Jóhannesson bætti öðru markinu við eftir góðan undirbúning Eiðs Orra Ragnarssonar.

Stefan Ljubicic skoraði síðan þriðja mark Keflavíkur stuttu síðar. Markús Páll Ellertsson náði að minnka muninn fyrir Skagamenn en nær komust þeir ekki.

Það var fjör á Lambhagavellinum í upphafi leiks þar sem Valur var í heimsókn hjá Fram. Tryggvi Hrafn Haraldsson skoraði strax á 2. mínútu eftir agaleg mistök Simon Tibbling.

Kennie Chopart jafnaði metin fyrir Fram á tíundu mínútu. Adam Ægir Pálsson kom hins vegar Val aftur yfir stuttu síðar eftir frábæra sendingu frá Tryggva.

Fram fékk vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks og Simon Tibbling skoraði úr henni og jafnaði metin. Það stefndi í jafntefli en Jakob Byström tryggði Fram stigin þrjú með glæsilegu marki í blálokin.

Stjarnan 2 - 3 KR
1-0 Örvar Eggertsson ('44 )
2-0 Benedikt V. Warén ('45 )
2-1 Aron Sigurðarson ('60 )
2-2 Luke Morgan Conrad Rae ('68 )
2-3 Ástbjörn Þórðarson ('87 )
Lestu um leikinn

Breiðablik 3 - 3 FH
1-0 Ásgeir Helgi Orrason ('25 )
2-0 Kristófer Ingi Kristinsson ('45 )
2-1 Gils Gíslason ('49 )
2-2 Kjartan Kári Halldórsson ('64 , víti)
2-3 Gils Gíslason ('69 )
3-3 Höskuldur Gunnlaugsson ('78 , víti)
Lestu um leikinn

ÍA 1 - 3 Keflavík
0-1 Ásgeir Páll Magnússon ('30 )
0-2 Axel Ingi Jóhannesson ('64 )
0-3 Stefan Alexander Ljubicic ('71 )
1-3 Markús Páll Ellertsson ('78 )
Lestu um leikinn

Fram 3 - 2 Valur
0-1 Tryggvi Hrafn Haraldsson ('2 )
1-1 Kennie Knak Chopart ('10 )
1-2 Adam Ægir Pálsson ('14 )
2-2 Simon Tibbling ('45 , víti)
3-2 Jakob Byström ('94 )
Lestu um leikinn
Besta karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur R. 6 5 1 0 19 - 4 +15 16
2.    KR 5 5 0 0 22 - 9 +13 15
3.    Breiðablik 5 3 2 0 8 - 2 +6 11
4.    Fram 5 3 1 1 15 - 9 +6 10
5.    Valur 5 3 0 2 11 - 9 +2 9
6.    Keflavík 6 2 1 3 9 - 11 -2 7
7.    Stjarnan 5 2 0 3 11 - 13 -2 6
8.    Þór 6 2 0 4 5 - 17 -12 6
9.    ÍA 6 1 2 3 7 - 13 -6 5
10.    KA 5 1 1 3 5 - 8 -3 4
11.    FH 5 0 1 4 8 - 15 -7 1
12.    ÍBV 5 0 1 4 6 - 16 -10 1
Slapp
banner
banner