Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 08. október 2020 22:51
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Hann tekur alltaf kyndilinn og ber hann áfram"
Icelandair
Gylfi skoraði bæði mörk Íslands.
Gylfi skoraði bæði mörk Íslands.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gylfi Þór Sigurðsson var maður leiksins og skoraði bæði mörk Íslands í sigri á Rúmeníu í undanúrslitum umspilsins fyrir EM á næsta ári.

Sjá einnig:
Einkunnagjöf Íslands: Gylfi maður leiksins

Rætt var um frammistöðu Gylfa á Stöð 2 Sport eftir leikinn. Rætt var um það hvort Gylfi væri besti landsliðsmaður sögunnar.

„Hann tekur alltaf kyndilinn og ber hann áfram," sagði fyrrum landsliðsmaðurinn Bjarni Guðjónsson. „Í þessum leik þurftum við tvö mörk og hann kemur með tvö mörk. Hann þurfti að hafa mikið fyrir þessu."

„Hann er ótrúlegur leikmaður, en fyrir utan allt þetta þá er vinnuframlagið hans alltaf til fyrirmyndar," sagði Bjarni.

Hægt er að lesa nánar um leikinn gegn Rúmeníu hérna.
Athugasemdir
banner
banner
banner