Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fim 08. desember 2022 21:59
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Meistaradeild kvenna: Wolfsburg í 8 liða úrslit - Jafnt í stórleik
Mateja Zver í leik með Þór/KA
Mateja Zver í leik með Þór/KA
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fjórðu umferðinni í riðlakeppni Meistaradeildar kvenna lauk í kvöld.


Real Madrid mistókst að endurheimta annað sætið af PSG í A riðli en liðið gerði jafntelfli gegn Chelsea 1-1 á heimavelli. Real var 1-0 yfir í hálfleik en Chelsea fékk víti eftir um klukkutíma leik.

Guro Reiten skaut í stöngina úr vítaspyrnunni en boltinn fór í bakið á Misa markverði Real og í netið.

A-riðill er því enn galopinn þegar tvær umferðir eru eftir. Chelsea á toppnum með 10 stig, PSG í 2. með 7 og Real með fimm. Vllaznia rekur lestina án stiga.

Sveindís Jane og stöllur í Wolfsburg eru komnar áfram í 8 liða úrslitin eftir að St Polten og Slavia Prag skildu jöfn 1-1. Mateja Zver fyrrum leikmaður Þór/KA tryggði St Polten stig en liðið á möguleika á því að komast áfram og slá Roma úr leik.

Wolfsburg er með 10 stig á toppnum, Roma í 2. sæti með sjö stig, St. Polten með fjögur en Slavia sem sló Val úr leik í forkeppninni er úr leik með 1 stig.

Real Madrid W 1 - 1 Chelsea W
1-0 Caroline Weir ('36 )
1-1 Guro Reiten ('59 , víti)

St. Polten W 1 - 1 Slavia Praha W
0-1 Kristyna Ruzickova ('27 )
1-1 Mateja Zver ('40 )


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner