Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 11. febrúar 2021 22:47
Victor Pálsson
Danmörk: Mikael sneri aftur á völlinn í bikarsigri
Mynd: Getty Images
Mikael Neville Anderson var mættur aftur í lið Midtjylland í kvöld sem spilaði við OB í danska bikarnum.

Mikael var ekki í leikmannahóp Midtjylland þann 8. febrúar er liðið vann Randers í dönsku úrvalsdeildinni.

Talað var um slagsmál á æfingasvæði dönsku meistarana á milli Mikaels og Sory Kaba.

Þeir voru báðir mættir á varamannabekkinn í kvöld er Midtjylland vann 2-1 útisigur í fyrri leiknum í 8-liða úrslitum.

Mikael kom inná þegar 26 mínútur voru eftir en þá var staðan 2-1 fyrir gestaliðinu.

Aron Elis Þrándarson kom einnig inná hjá OB en Sveinn Aron Guðjohnsen var ekki í leikmannahópnum.

Seinni leikur liðanna verður spilaður eftir mánuð.

Sjá einnig:
Mikael ekki í hóp hjá Midtjylland - Stympingar á æfingasvæðinu

Athugasemdir
banner
banner
banner