Danny Mills, fyrrum leikmaður enska landsliðsins, segir að Gylfi Þór Sigurðsson sé ekki með hraða eða líkamlega burði á við suma liðsfélaga sína, en hann sé sigurvegari.
Gylfi átti stórkostlegan leik fyrir Everton gegn sínu gamla félagi, Tottenham, í enska bikarnum í vikunni. Gylfi lagði upp þrjú mörk og skoraði eitt í 5-4 sigri Everton.
Mills segir að Carlo Ancelotti, stjóri Everton, eigi hrós skilið fyrir að halda í trú á Gylfa þrátt fyrir að hafa sótt nýja leikmenn á borð við James Rodriguez til félagsins.
„Hann er leikmaður með mikil gæði. Ég meina, hann kostaði 45 milljónir punda," sagði Mills við Football Insider
„Hann stóð sig vel hjá Swansea og hann skorar nokkuð mikið. Ég held að hann viti að hann þurfi að spila í ákveðinni stöðu. Hann er tía (sóknarsinnaður miðjumaður) og honum líður ekkert alltof vel annars staðar á vellinum."
„Ef þú spilar honum framarlega á miðjunni og gefur honum ákveðið frelsi, þá sýndi hann hvað hann getur gert."
„Ancelotti hefur gert mjög vel. Þeir hafa fengið inn nýja menn sem eru með hraða og líkamlegan styrk (e. athleticism) sem hann (Gylfi) hefur ekki. Ancelotti á hrós skilið fyrir að setja leikmenn ekki í frystikistuna, jafnvel þó að leikmaður eins og Rodriguez komi inn."
Gylfi og félagar í Everton eiga heimaleik við Fulham í ensku úrvalsdeildinni á morgun.
Athugasemdir