James Tarkowski, leikmaður Burnley, verður samningslaus í sumar en það er langt síðan hann tók ákvörðun um að framlengja ekki samning sinn við félagið.
Tarkowski er 29 ára gamall og á að baki tvo landsleiki fyrir England.
Tarkowski er 29 ára gamall og á að baki tvo landsleiki fyrir England.
Newcastle og West Ham hafa verið hvað mest orðuð við miðvörðinn en samkvæmt heimildum Mirror er West Ham að gefa eftir í baráttunni og David Moyes, stjóri félagsins, er sagður horfa annað.
Það skilur eftir Newcastle sem ætlar að fá inn miðvörð í sumar. Félagið getur boðið Tarkowski talsvert hærri laun en þau 50 þúsund pund sem hann er með á viku hjá Burnley.
Athugasemdir