Fotbolti.net
14.04.21 - 21:47
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Klopp: Mjög mikilvægt að komast aftur í þessa keppni

Hugsað í hálfleik

Hugsað í hálfleik

Canon

Mynd: EPA

„Þú þarft alltaf á þessum lykil augnablikum að halda. Við töpuðum ekki einvíginu í kvöld, við töpuðum í Madrid. Þetta var óþægilegt fyrir Madrid. Við vorum góðir, ákveðnir og sköpuðum færi," sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, í viðtali eftir jafntefli við Real Madrid í kvöld. Liverpool er úr leik í Meistaradeildinni eftir tap í Madrid í fyrri leik liðanna.

„Við skoruðum ekki og reynslan í Real Madrid náði að sigla þessu heim. Þetta endurspeglar tímabilið okkar, við höfum ekki nýtt færin okkar."
„Við vitum allir hversu oft Mo Salah klárar svona færi með lokuð augun. Ekki núna. Kvöldið var algjörlega í lagi en við erum úr leik."

„Við elskum þessa keppni og vegna annarra ástæðna þá er mjög mikilvægt að við verðum aftur í henni að ári. Við getum núna einbeitt okkur að deildinni og við munum gera það. Við verðum að vera klárir í slaginn gegn Leeds," sagði Klopp.

Liverpool er í sjötta sæti úrvalsdeildarinanr og á ekki lengur möguleika á að vinna titil á þessari leiktíð.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City6+1118
2Arsenal6+515
3Brighton6+1313
4Brentford6+610
5Everton6+310
6Chelsea6+210
7Leeds6+39
8Hull City6+29
9Liverpool609
10Ipswich Town6-39
11Newcastle6-38
12Crystal Palace6-37
13Man Utd606
14Coventry6-66
15Nott. Forest6-35
16Aston Villa6-55
17Sunderland6-64
18Bournemouth6-63
19Tottenham6-63
20Fulham6-42
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.