Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 14. júní 2022 18:13
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Nunez kominn með númer - Fetar í fótspor Hauks Inga
Nunez var númer níu hjá Benfica.
Nunez var númer níu hjá Benfica.
Mynd: EPA
Darwin Nunez er mættur til Liverpool og það er búið að gefa það út hvaða númer hann verður með á bakinu.

Hann mun klæðast treyju númer '27' hjá Liverpool.

Hann var í treyju númer '9' hjá Benfica en Roberto Firmino er með það númer hjá Liverpool.

Nunez fetar þar með í fótspor Divock Origi og Hauks Inga Guðnasonar, sem hafa verið með þetta númer hjá félaginu. Haukur Ingi var í Liverpool frá 1997 til 2000 en spilaði ekki með aðalliðinu. Hann fékk samt þetta númer samkvæmt Transfermarkt.

Nunez kemur til Liverpool frá Benfica í Portúgal þar sem hann skoraði 34 mörk í 41 keppnisleik á síðustu leiktíð.


Athugasemdir
banner
banner
banner