Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 14. júlí 2021 14:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Lið 10. umferðar: Tvær í fyrsta skiptið
Katie Cousins
Katie Cousins
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ásta Eir Árnadóttir
Ásta Eir Árnadóttir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tiffany Sornpao
Tiffany Sornpao
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tíunda umferð í Pepsi Max-deild kvenna fór fram á dögunum og lauk í gær með einum leik. Valur, Breiðablik, Selfoss og Þróttur unnu sína leiki og þá var jafntefli þegar ÍBV heimsótti Þór/KA fyrir norðan.

Selfoss hafði verið í lægð og ekki náð að fylgja á eftir góðri byrjun á tímabilinu. Alfreð Elías Jóhannsson er þjálfari umferðarinnar eftir sigur liðsins á Keflavík. Barbára Sól Gísladóttir var frábær í leiknum og var valin best á vellinum. Hún lagði upp eina mark leiksins. Tiffany Sornpao í marki Keflavíkur var öflug í marki gestanna og er í liðinu í þriðja sinn í sumar.



Breiðablik vann 0-4 útisigur á Fylki í Árbænum í umferðinni. Þrír leikmenn Breiðabliks eru í liði umferðarinnar en fleiri leikmenn gerðu tilkall! Þær Agla María Albertsdóttir og Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir eru í liðinu og ekki í fyrsta skiptið í sumar. Það er hins vegar Ásta Eir Árnadóttir sem átti flottan leik í hægri bakverðinum.

Valur vann 0-2 útisigur á Stjörnunni í umferðinni. Mary Alice Vignola skoraði fyrra mark Vals og var valin best á vellinum. Anna María Baldursdóttir var frábær í vörn í Stjörnunnar í leiknum.

Katie Cousins er í liði umferðarinnar í 7. sinn í sumar, Katie var best á Eimskipsvellinum. Þróttur vann 2-0 sigur á Tindastóli. Linda Líf Boama er einnig í liðinu. Hún lagði upp seinna mark Þróttar í leiknum.

Loks eru tveir leikmenn ÍBV í liðinu. Olga Sevcova bjó til jöfnunarmark ÍBV í leiknum og var valin best á vellinum. Það var Hanna Kallmaier sem skoraði jöfnunarmarkið og hún er einnig í liðinu.

Fyrri lið umferðarinnar:
1. umferð
2. umferð
3. umferð
4. umferð
5. umferð
6. umferð
7. umferð
8. umferð
9. umferð
Athugasemdir
banner
banner
banner