Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 15. október 2021 23:47
Brynjar Ingi Erluson
Myndband: Greip boltann og datt inn í markið
Rody de Boer gerði klaufaleg mistök
Rody de Boer gerði klaufaleg mistök
Mynd: Getty Images
Unglinga- og varalið PSV skoraði undarlegt mark í 2-2 jafntefli gegn Roda JC í hollensku B-deildinni í gær en markvörður Roda datt með boltann inn í markið.

PSV átti góða sókn. Þeir keyrðu upp hægri vænginn áður en fyrirgjöfin kom fyrir markið.

Rody de Boer, markvörður Roda, sá að boltann var að fara yfir hann þannig hann stökk aftur fyrir sig og greip boltann. Það vildi ekki betur til en að hann lenti á stönginni og fór inn með boltann.

Klaufalegt hjá markverðinum en markið má sjá hér fyrir neðan.

Sjáðu sjálfsmarkið hér

Athugasemdir
banner