Fotbolti.net
15.11.24 - 19:00
Ívan Guðjón Baldursson

Jannik Pohl yfirgefur Fram (Staðfest)

Jannik Pohl yfirgefur Fram (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Danski framherjinn Jannik Pohl hefur yfirgefið Fram eftir að samningur hans við félagið rann út.
Jannik er 28 ára gamall og var bjartsýnn á að fá nýjan samning hjá Fram þrátt fyrir mikil meiðslavandræði síðustu ár.

Segir Fram vilja halda sér - Ætlar að sanna sig á Íslandi
TENGT EFNI

Segir Fram vilja halda sér - Ætlar að sanna sig á Íslandi



Jannik gekk til liðs við Fram fyrir sumarið 2022 og hefur verið á mála hjá félaginu í þrjú tímabil í efstu deild en lítið tekist að spila vegna meiðsla.

Jannik var mikilvægur fyrir Fram á sínu fyrsta tímabili í íslenska boltanum þegar hann skoraði fjögur mörk í þremur leikjum í neðri hluta Bestu deildarinnar eftir tvískiptingu til að hjálpa félaginu að halda sér uppi í efstu deild.

Hann hefur í heildina skorað 10 mörk í 31 leikjum í Bestu deildinni, auk þess að skora eitt mark í tveimur leikjum í Mjólkurbikarnum.

Jannik virðist hafa áhuga á að spila áfram á Íslandi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.