Fotbolti.net
16.10.21 - 09:00
Brynjar Ingi Erluson

„Eyddum milljónum í VAR og kunnum ekki einu sinni að nota þetta"

Kylian Mbappe skoraði úr vítaspyrnunni

Kylian Mbappe skoraði úr vítaspyrnunni

Canon

Mynd: Getty Images

Romain Thomas, fyrirliði franska liðsins Angers, var allt annað en sáttur við vítaspyrnuna sem Paris Saint-Germain fékk undir lok leiks í 2-1 tapinu gegn stórliðinu.
Angelo Fulgini tók forystuna fyrir Angers í leiknum áður en Kylian Mbappe lagði upp mark fyrir Danilo Pereira.

Á 86. mínútu fékk PSG vítaspyrnu þegar Perrick Capelle handlék knöttinn innan teigs. Mbappe skoraði úr spyrnunni og tryggði PSG sigurinn.

Thomas var ósáttur við dómgæsluna og vill meina að Mauro Icardi hafi verið brotlegur í aðdragandanum.

„Það er alveg hreint með ólíkindum hvað gerðist. Það að tapa 2-1 hér er ekkert til að skammast sín fyrir, en ekki á þennan hátt, þetta er ekki hægt. Ég skil ekki af hverju dómararnir tóku sér ekki tíma í þetta. Ég er orðinn svo þreyttur á þessu VAR-rugli. Við eyddum milljónum í þetta og kunnum ekki einu sinni að nota þetta," sagði Thomas.

„Þetta er ógeðslega pirrandi því ég er með mikla ástríðu fyrir fótbolti og hef tileinkað lífi mínu í fótboltann. Icardi brýtur af sér í byrjun sóknarinnar og rífur í handlegginn á mér og ég dett, en svo nýtir hann sér stöðuna og nær í þetta víti. Ég er pirraður yfir þessu."

„Áður en hann fór að VAR-skjánum þá tók ég mér tíma í að segja honum að þetta væri ekki víti. Hann græðir á einvíginu gegn mér í byrjun sóknarinnar með því að vera fyrir framan varnarmennina og ég spurði dómarann og hann sagði mér að fólkið sem sér um VAR hafi skoðað atvikið. Það er haugalygi,"
sagði hann í lokin.
Mauro Icardi vann vítið en var brotlegur í byrjun sóknarinnar samkvæmt Romain Thomas

Mauro Icardi vann vítið en var brotlegur í byrjun sóknarinnar samkvæmt Romain Thomas

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.