Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 17. júní 2022 09:52
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sky: Bayern tilbúið að borga uppsett verð fyrir Mane
Mynd: EPA

Bayern Munchen er tilbúið að borga uppsett verð fyrir Sadio Mane leikmann Liverpool. Þetta kemur fram á Sky Sports.


Liðin hafa verið í viðræðum undanfarnar vikur og Bayern komið með nokkur tilboð sem Liverpool hefur hafnað. Bayern taldi sig geta boðið lægra vegna þess að Liverpool var komið með nýjan leikmann í Darwin Nunez fyrir Mane.

Liverpool vill fá 42.5 milljónir punda fyrir Senegalann en samningur hans við enska félagið rennur út á næsta ári. Fabrizio Roman greindi frá því á dögunum að Mane hafi þegar náð munnlegu samkomulagi við þýska félagið.

Nú er talið að Bayern sé tilbúið að borga 42.5 milljónir punda fyrir leikmanninn og félagsskiptin gangi í gegn fljótlega.


Athugasemdir
banner
banner