Sveindís Jane Jónsdóttir fékk að spila síðustu 25 mínúturnar í þægilegum sigri Wolfsburg gegn Essen í þýska boltanum í dag.
Sveindísi var skipt inn á 66. mínútu í stöðunni 3-0. Hún kom inn fyrir þýsku stórstjörnuna Alexandra Popp og urðu lokatölur 4-0. Liðin mættust í fyrstu umferð nýs deildartímabils.
María Þórisdóttir var þá ónotaður varamaður í fyrstu umferð ensku deildarinnar þar sem Manchester United vann sannfærandi sigur á Reading.
Í Danmörku kom hin bráðefnilega Emilía Kiær Ásgeirsdóttir inn af bekknum í tapi Nordsjælland sem er aðeins með fjögur stig eftir fimm umferðir og á Ítalíu lék Anna Björk Kristjánsdóttir allan leikinn í stórsigri Inter.
Anna Björk er að festa sig í sessi í byrjunarliði Inter sem er með sjö stig eftir þrjár fyrstu umferðir nýs tímabils.
Að lokum áttust Brann og Rosenborg við í norsku úrslitakeppninni. Um var að ræða alvöru Íslendingaslag þar sem landsliðsstelpurnar okkar réðu úrslitum.
Selma Sól Magnúsdóttir kom Rosenborg yfir snemma leiks og tókst Svövu Rós Guðmundsdóttur að jafna fyrir Brann í upphafi síðari hálfleiks.
Lokatölur urðu 1-1 og er Brann með tveggja stiga forystu á toppi deildarinnar. Rosenborg er í öðru sæti, sex stigum fyrir ofan Vålerenga sem situr í þriðja með leik til góða.
Brann 1 - 1 Rosenborg
0-1 Selma Sól Magnúsdóttir ('9)
1-1 Svava Rós Guðmundsdóttir ('51)
Wolfsburg 4 - 0 Essen
1-0 Ewa Pajor ('14)
2-0 Alexandra Popp ('40)
3-0 Tina Wassmuth ('44)
4-0 Ewa Pajor ('70)
Man Utd 4 - 0 Reading
1-0 Maya Le Tissier ('4)
2-0 Katie Zelem ('14, víti)
3-0 Maya Le Tissier ('25)
4-0 Alessia Russo ('35)
Inter 6 - 1 Pomigliano
1-0 Elisa Polli ('15)
2-0 Elisa Polli ('22)
3-0 Elisa Polli ('46)
3-1 V. Amorim ('54)
4-1 G. Karchouni ('70)
5-1 A. Nchout ('83)
6-1 A. Nchout ('91)
Fortuna Hjörring 3 - 0 Nordsjælland